
From one of the first music shows produced by the Icelandic national TV in 1976. The show was called "In the basement". Bergþóra Árnadóttir appearing for the first time on TV in Iceland. EFTIRMÆLI Ljóð: Steinn Steinarr Þú varst bæði auralaus og illa klæddur maður, með afar stóra fætur og raunalegar hendur. Þú hafðir enga þýðingu í þjóðmálum sem slíkur, og það veit enginn til hvers þú varst í heiminn sendur. Og sjaldan heyrðist talað um sálargáfur þínar, og sennilegt þær hafi frekar lítinn ávöxt borið. Þú þekktir hvorki leyndardóma þessa heims ná annars. Og það var ekki meira en svo að þú kynnir Faðirvorið. Þú reyndir samt að bjarga þér. Og fékkst á yngri árum við arðberandi fiskirí í Grindavík og Leiru. En svo var eins og lukkan hefði lagt sig ögn til hliðar, það lögðust á þig veikindi og skuldir, ásamt fleiru. Þú áttir jafnvel stundum býsna örðugt með að lifa og ennfremur var tóbaksleysið kunnugt heima hjá þér. Og giktin, sem er launráð og lymskufull í skapi, hún lagðist oft svo herfilega þungt í bakið á þér. Þú kyntir stundum miðstöð fyrir kaupmanninn og prestinn, og kaupið þitt var hærra en þér bar, að réttu lagi, það var samt lítill vafi, að þig langaði í meira. Þú lézt þér jafnvel sæma að kvarta um eigin hagi. Það sást þó bezt í vetur, er þú týndir tóbaksbauknum og tíkin komst í grautinn, sem læknisfrúin gaf þér, hve hugur þinn var bundinn við heimsins lystisemdir, og hörmulega lítils við gátum vonazt af þér. Þú gerðist oft svo djarfur, að tala um toll á kaffi og <b>...</b>
Bergþóra
Árnadóttir
Iceland
Icelandic
folk
basement
troubadour
12
string
guitar
poetry
reykjavik
Birgitta
Joy